ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

MORITURI TE SALUTANT

14:56 › 14. desember 2008


Já, þetta er auðvitað fín og skemmtileg grein hjá breska blaðamanninum Gill í The Sunday Times.

En það er samt eitthvað grátlegt við hana og þó ekki síður þakklætið sem birtist í athugasemdum Íslendinga við greinina.

Og mér líður ekkert mikið betur þó ég njóti aðdáunar um víða veröld fyrir hvað ég er duglegur að lifa af Móðuharðindi.

Það er næstum einhver "morituri te salutant" fílingur í þessu.

Eins og við séum öll komin með kveðjuorð skylmingaþrælanna á vör: "Þeir sem eiga að deyja heilsa yður."

Svo geta allir grátið yfir því hvað við erum göfug en við verðum jafn dauð fyrir því ...

Þótt vissulega sé þrástagast á því í greininni að við munum lifa af.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?