ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 8m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVAÐA RÁÐHERRA VERÐUR SKIPT UM?

21:31 › 14. desember 2008


Sjónvarpið kveðst hafa heimildir fyrir því að skipt verði um fjóra ráðherra á næstunni, ekki aðeins tvo.

Það hefur lengi staðið til að Björn Bjarnason hætti, alveg óháð bankahruninu.

Samfylkingin vill sýna að ráðherrar flokksins axli ábyrgð svo Björgvin G. Sigurðsson verður að draga sig í hlé.

Og þá má Sjálfstæðisflokkurinn ekki sýna minni ábyrgðaröxlun svo Árni Mathiesen hættir.

Og þá verður annar Samfylkingarráðherra að hætta líka.

Var ekki Sjónvarpið að giska á að sá seinni yrði Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Ráðherratíð hennar hefur vissulega ekki verið nein sigurför.

En er Kristján Möller friðhelgur?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?