Það fór sem mig grunaði að flestir sótraftar hafa nú verið á sjó dregnir til að lýsa hneykslun sinni á þeirri "hótun" sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi sýnt Sjálfstæðisflokknum með því að hafa orð á þeirri pólitísku staðreynd að til lengdar gætu Samfylking og Sjálfstæðisflokkurinn auðvitað ekki starfað saman ef þau hefðu gjörólíka stefnu í peningamálum, les=Evrópumálum.
Ég ber djúpa virðingu fyrir flestum þeim sem ekki vilja ganga í Evrópusambandið. Ég mundi vera í þeirra hópi ef ég teldi að við hefðum um eitthvað að velja.
En ergileg hróp um "hótanir" eru fyrir neðan virðingu andstæðinga ESB.
Merkilegast er þetta viðhorf hér hjá Halli Magnússyni. Að sjálfstæðismenn verði svo móðgaðir yfir "hótun" Ingibjargar Sólrúnar að þeir muni flykkjast til liðs við andstæðinga ESB.
Hallur virðist sem sagt búast við því að sjálfstæðismenn láti "móðgun" í flokkspólitískum erjum ráða því hvaða afstöðu þeir taka í afdrifaríkasta máli Íslandssögunnar síðan lýðveldi var stofnað.
Jahérna.
Blogg
SÁRMÓÐGAÐIR SJÁLFSTÆÐISMENN
21:32 › 13. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
