ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 9m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NÚ MUN VERÐA TALAÐ MIKIÐ UM HÓTANIR ...

13:20 › 13. desember 2008


... eftir orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í Vikulokunum.

Náhirðin í Sjálfstæðisflokknum mun fara hamförum.

En auðvitað er þetta bara pólitísk staðreynd hjá henni.

Aðalstefnumál Samfylkingar, aðild að ESB, er svo sannarlega komið á dagskrá, hvort sem mönnum líkar betur eða verr.

Og það snýst ekki um líðan einhverra kalla í Sjálfstæðisflokknum.

Samfylkingin hefur reyndar sýnt þeim furðu mikið langlundargeð og afsakað sig með "björgunaraðgerðunum".

En það er morgunljóst að ef Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki kanna ESB-leiðina, þá losnar endanlega límið í þessari ríkisstjórn.

Þetta vita allir. Bæði Ingibjörg Sólrún, Geir Haarde og við öll.

Og við skulum ekki vera svo föst í þeim hjólförum flokkakerfisins sem átti sinn þátt í að koma okkur í þessi vandræði, að við förum að líta á það sem hótanir ef fólk vogar sér að segja sannleikann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?