ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 9m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NAFNI MINN OG BJARNI BEN TAKA AF SKARIÐ

10:48 › 13. desember 2008


Það er svo undarlegt að þótt Sjálfstæðisflokkurinn heiti Sjálfstæðisflokkurinn, þá hefur ekki verið leyfilegt að hafa þar sjálfstæðar skoðanir í bráðum tuttugu ár.

Það hefur til dæmis ekki verið leyfilegt að hafa aðra skoðun á ESB en þessa:

"Við eigum ekkert erindi í Evrópusambandið. Málið er alls ekki á dagskrá."

Síðustu árin hefur verið slakað örlítið á og nú allra síðustu misserin hefur verið náðarsamlegast leyft að hafa þessa skoðun:

"Við eigum ekkert erindi í Evrópusambandið við núverandi aðstæður. Það gæti ef til vill hugsanlega kannski einhvern tíma breyst, en alls ekki í fyrirsjáanlegri framtíð."

Þorgerður Katrín varaformaður flokksins hefur sætt grimmilegum ofsóknum náhirðarinnar fyrir að segja við ýmis tækifæri:

"Heyrðu, já, það er ekkert athugavert við að skoða þetta, það gæti farið að verða tímabært."

Nú stíga þeir fram, Bjarni Benediktsson og nafni minn  Gunnarsson, og segja það sem liggur í augum uppi:

Að auðvitað er ekki nema sjálfsagt og æskilegt að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Einfaldlega af því það er einn helsti kostur okkar í núverandi stöðu, og það væri fáránleg firra að kanna ekki þann kost með alvöru aðildarviðræðum. Það væri ábyrgðarleysi og skaðlegt hagsmunum okkar að ganga ekki til viðræðna við sambandið og kanna hvort það sé eitthvað fyrir okkur.

Gott hjá Bjarna og Illuga.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?