Ástandið hér á landi er orðið svo skrýtið að manni þykir sérstaklega lofsvert að ráðherrar skuli EKKI vera með lífverði.
Þessir lífverðir sem Geir og Davíð (og kannski fleiri?) hafa "skartað" að undanförnu eru náttúrlega fáránlegir.
Við sáum að lífverðir fylgdu Davíð meira að segja inn á fund viðskiptanefndar Alþingis.
Bjóst hann við að einhverjir þingmanna ætluðu að ráðast á sig?
Eða var þetta kannski hugsað til að skjóta þingmönnum skelk í bringu?
Og þegar hann brá sér fram að hringja eitt símtal, þá fylgdi lífvörður honum fram á gang!
Fyrr má nú vera óttinn til þjóðina!
Björn Bjarnason á ekki að komast upp með að neita að svara spurningum um þá.
Kostnaðurinn hlýtur að vera gríðarlegur, en af hverju er verið að þessu?
Hafa einhverjar hótanir borist?
Það eru engir öryggishagsmunir fólgnir í því að halda þessu leyndu. Hafi einhverjir hótað, þá vita þeir það jú sjálfir!
En eru lífverðirnir vopnaðir byssum?
Blogg
ERU LÍFVERÐIRNIR MEÐ BYSSUR?
11:39 › 13. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
