ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 9m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

Á NÚ AÐ KLÚÐRA ÞESSU LÍKA?

07:32 › 12. desember 2008


Málssóknin gegn Bretum vegna hryðjuverkalaganna er í stórhættu.

Ekki vegna þess að það virðist neitt athugavert við slíka málssókn.

Burtséð frá lagakrókum, þá eru allir aðrir en breskir ráðamenn sammála um að beiting þessara laga hafi verið óforskömmuð og siðlaus.

Og skaut í kaf eina björgunarbátinn sem íslenska bankakerfið átti, altso Kaupþing.

En það er víst vegna sinnuleysis sem málssóknin er í hættu.

Íslensk stjórnvöld senda ekki breskri lögmannsstofu þau gögn sem hún þarf á að halda til að undirbúa málarekstur.

Og frestur til að fara í mál er að renna út.

Íslensk stjórnvöld munu ábyggilega halda því fram að þau séu önnum kafin við "björgunarstörf" ...

En verði það niðurstaða að ekki verði farið í mál út af sinnuleysi ríkisstjórnarinnar, þá vona ég að einhver fari í mál við ríkisstjórnina.

Spurning hve miklu stjórnvöld mega klúðra áður en þau fara að baka sér stórfellda skaðabótaábyrgð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?