Kristján Þór Júlíusson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var að rökræða nýja fjárlagafrumvarpið við Steingrím J. Sigfússon í Kastljósi í gærkvöldi.
Sigmar spurði m.a. um skerðingu sem bótaþegar almannatrygginga yrðu fyrir, nema held ég þeir sem allra lægstar hafa bæturnar.
Kristján svaraði því með því að spyrja hvort ekki væri sanngjarnt að allir þyrftu að bera sinn hluta byrðanna af þeirri kreppu sem nú gengi yfir. Líka bótaþegar.
Svarið er nei.
Fólk sem lifir á bótum á enga sök á kreppunni. Það lifir nú þegar við eða undir fátækramörkum. Það er ekki sanngjarnt að varpa byrðum nýfrjálshyggjunnar, bankabruðlsins og óhæfra stjórnvalda á þetta fólk.
Það bara hlýtur að vera hægt að finna þá peninga annars staðar sem nú á að hirða af bótaþegum á Íslandi!
Blogg
NEI KRISTJÁN ÞÓR, ÞAÐ ER EKKI SANNGJARNT
08:59 › 12. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
