ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

TIL VARNAR AGLI

10:12 › 11. desember 2008


Ég verð að snúast til varnar mínum góða nágranna og gamla vini, Agli Helgasyni, sem undarlega ómaklegum orðum er farið um í Sandkorni DV.

Reyndar held ég að þetta hljóti að vera skrifað í einhverjum misheppnuðum hálfkæringi og bríaríi, svo út í Hróa hött sem þetta Sandkorn er.

Vissulega eru sumir heldur jafnvægislitlir sem tjá sig á bloggsíðunni hans.

En þótt Egill sjálfur sé auðvitað ekki heilagur maður, frekar en aðrir, á hann þó síst fjölmiðlamanna skilið ádrepu af þessu tagi, og það er afar óviðkunnanleg fyndni að kalla það fólk sem komið hefur fram í þáttum hans að undanförnu "kverúlanta".

DV reynir nú yfirleitt að tala máli alþýðufólks en ekki þeirra "málsmetandi manna" sem blaðið læst nú sakna úr Silfri Egils. Því er þetta skrýtið, vægast sagt.

Ennfremur er furðuleg sú staðhæfing að eitthvað sé athugavert við að skoðanir Egils birtist í þættinum.

Ég trúi því ekki að einhverjum á DV finnist það í raun og veru athugavert. Þetta hlýtur eiginlega allt saman að vera ansi misheppnað djók.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?