ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞAÐ SEM BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON VISSI EKKI

09:09 › 11. desember 2008


Klúðrið í kringum rannsókn KPMG á Glitni sýnir furðulegt hugsunarleysi flestra sem að því máli komu.

Ekki hvarflar að mér annað en endurskoðendur KPMG hafi unnið að sinni rannsókn af fyllsta heiðarleika. En það átti ekki að setja þá í þessa aðstöðu.

Létu þeir sér ekki detta það í hug sjálfir?

Og fyrirgefðu, Björgvin G. Sigurðsson, en það fer að verða hægt að fylla dágott kver með öllu því sem þú "vissir ekki".

Þú vissir t.d. ekki að Baldur Guðlaugsson ætti umtalsverðan hluta í Landsbankanum þegar þið fóruð að funda með Bretum um málefni bankans.

Auðvitað stóð það fyrst og fremst upp á Baldur að segja þér frá því, en mér hefði samt ekki þótt neitt athugavert við að bankamálaráðherrann væri með á hreinu  hverjir ættu hluti í stóru bönkunum þremur.

Til að vita af og forðast hagsmunaárekstra.

Og nú síðast sagðist þú ekki haft hugmynd um að stjóri KPMG og stjóri leifanna af FL Group væru feðgar.

Björgvin minn!

Svonalagað átt þú að vita.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?