Í tjásu við orðsendingu mína fyrr í dag spyr Guðmundur Guðmundsson hvort aldrei sæki að mér efasemdir um að rétt sé að sækja um aðild að ESB. Sjá tjásuna.
Ég ákvað að svara þessu hér:
"Efasemdir um hvað, Guðmundur?
Það sækja aldrei að mér efasemdir um að okkur Íslendingum er nauðsyn á að sækja um aðild að ESB. Við þurfum að gera það af alvöru og reyna að sækja eins mikil réttindi og við getum. En líki okkur ekki niðurstaðan eigum við að sjálfsögðu að fella aðildina í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ég tel ekki að forkólfar ESB séu "góðir menn" sem vilji okkur vel. Þeir eru pólitíkusar með miklar skrifræðishneigðir og bera sumir ekki ótakmarkaða virðingu fyrir vilja almennings í öllum þeim fjölbreyttu löndum sem mynda ESB.
En ég held að þrátt fyrir allt gæti hentað okkur að vera í kompaníi með þessum mönnum.
Og þrátt fyrir allt taka nær öll lýðræðisríki Evrópu þegar þátt í þessum samtökum.
Ég er ekki sérfræðingur í vendingum á Írlandi. En ef Írar eru sannfærðir um að nánari samvinna innan ESB sé eitthvað sem hentar þeim ekki, þá munu þeir væntanlega hafna slíkri samvinnu á ný."




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
