Það er skemmtilegt starfsheiti að vera "stækkunarstjóri". En stækkunarstjóri Evrópusambandsins, Olli Rehn, sagði altént í gær að Íslendingar gætu vel fengið flýtimeðferð við að komast inn í ESB, ef þeir svo kjósa.
Og Göran Persson, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, tók undir það og sagði Íslendinga að auki geta vænst þess að fá stuðning norrænu þjóðanna við sérlausn í sjávarútvegsmálum.
Getur nú einhver með sanngirni haldið því fram að það væri ekki rétt að þiggja þá uppástungu að sækja um strax?
Úr því okkur stendur það til boða?
En eyða ekki tímanum í þumbaraskap hér heima og umræður, sem því miður koma að endingu að litlum sem engum notum.
Og munu fljótt breytast í það séríslenska fyrirbæri þref.
Því þær umræður sem raunverulega skipta máli eru náttúrlega bara aðildarviðræðurnar sjálfar.
Blogg
HIÐ SÉRÍSLENSKA ÞREF
04:32 › 11. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
