ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KATTARÞVOTTUR RÍKISSTJÓRNARINNAR

08:01 › 10. desember 2008


Hvað varð af eftirlaunafrumvarpi Vinstri grænna sem leggja átti fram í gær?

Og leiðrétta átti ALLAN þann eftirlaunaósóma sem frumvarp ríkisstjórnarinnar leiðrétti aðeins að hluta.

Ég vona að þingmenn bæði Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sjái sóma sinn í að samþykkja þetta frumvarp VG.

Hafa menn ekki þrástagast á að nú sé tími til að hugsa út fyrir litlu kassana sína?

Og hvað er að því að stjórnarþingmenn samþykki frumvarp stjórnarandstöðu ef það er klárlega betra en kattarþvottur ríkisstjórnarinnar?

Ef það á að svæfa þetta mál í nefnd, þurfa fjölmiðlar að vera vel á verði og vekja málið jafnharðan!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?