15:13 › 1. desember 2008
Það er illa gert hjá Birni Inga að gefa í skyn að tök Davíðs Oddssonar á peningamálum Íslendinga hafi hlotið sérstaka náð fyrir augum kommúnistanna í Fjórða alþjóðasambandinu.
Eins og nákvæmur lestur á heimildinni ber með sér voru kommúnistarnir bara að endursegja röksemdir Seðlabankastjóra í þeirri klausu sem Björn Ingi vitnar til.
Og öll greinin á vefsíðu þeirra ber auðvitað með sér að þeir eru engu hrifnari af ráðum og dáð Davíðs en aðrir.
Þó mennirnir séu kommúnistar eru þeir engir bjánar.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
