Í nýjum reyfara er lýst viðskiptaveldi Wennerströms nokkurs í Svíþjóð.
Hann er reyndar hreinræktaður glæpamaður, sem stendur auk venjulegra viðskipta í alls konar subbuskap.
En lýsingin á uppbyggingu fyrirtækis hans er svona:
"Frægt heimsveldi Wennerströms var eins og amaba sem sífellt skipti um lögun. Það samanstóð af kaupréttum, skuldabréfum, verðbréfum, eignarhlutum, vaxtatekjum, veðum, reikningum, yfirfærslum og þúsund öðrum hlutum.
Óhemju stórum hluta af tekjunum hafði verið fyrir komið í skúffufyrirtækjum sem voru hvert í annars eigu ...
Wennerström var búinn að koma sér upp þvílíkri svikamyllu að það var ekki lengur glæpsamlegt - það voru viðskipti."
Blogg
GLÆPIR VERÐA VIÐSKIPTI
07:40 › 1. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
