Fyrir nokkrum vikum var ég að fabúlera um að brátt myndi brjótast út "nóvember-byltingin".
Ég átti ekki við blóðuga byltingu þar sem stjórnvöldum yrði bylt með ofbeldi.
Heldur frekar eins og hugarfarsbyltingu, þar sem fólk kæmist að þeirri niðurstöðu að það yrði sjálft að taka örlög sín í eigin hendur.
Ekki láta leiða sig eins og sauði af misvitrum stjórnvöldum.
Sér í lagi ekki ef þau stjórnvöld væru nánast hin sömu og hefðu komið hér öllu á kaldan klaka.
Þótt fundir á Austurvelli og í Háskólabíói bendi til að fólk láti ekki lengur bjóða sér hvað sem er, þá verð ég að viðurkenna að nóvember-byltingin mín braust varla út.
En þá er bara að boða desember-byltinguna!
Og byrja í dag, klukkan ÞRJÚ á Arnarhóli.
Allir með!!!
Blogg
DESEMBER-BYLTINGIN
09:31 › 1. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
