ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

MYNTKÖRFULÁN FROM HELL

17:16 › 9. nóvember 2008


Óþægilegt þegar upp dúkka menn sem virðast vita sínu viti og hvetja okkur til að sleppa láninu frá IMF.

Ég meina ekki menn sem tala í heitingum eins og Jónas Kristjánsson, með fullri virðingu fyrir honum.

Nei, ég meina menn eins og Daniel Gros.

Sem vill að við sleppum IMF-láninu en tökum upp evru strax í dag.

Hvernig veit óhagfróður maður eins og ég hvað er rétt og hvað er rangt?

Hvar er sá umræðuvettvangur hagfræðinga sem getur ráðlagt okkur?
Ég hef hingað til verið þeirrar skoðunar að það dygði ekkert annað en taka þetta IMF-lán.

Svo hitti ég konu í gær sem býsnaðist yfir því að við værum að snapa lán hjá IMF og lán hjá Skandínövum og lán hjá Rússum og lán hjá Kínverjum og lán hjá Japönum og lán hjá Pólverjum.

"Er þetta ekki bara eitt risavaxið myntkörfulán?" spurði hún. "Og er ekki alltaf verið að vara mann við þeim ósköpum?"




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?