Hvað er að gerast hjá Sjónvarpinu?
Viðhafnarviðtalið við Geir Haarde verður æ einkennilegra í minningunni; hvað var eiginlega á seyði þar? Getur ekki einhver snaggaralegur fréttamaður spurt Óðin Jónsson hvað í veröldinni sú glansmynd átti eiginlega að þýða?
Af hverju var ekki skrefið stigið til fulls og fréttamennirnir látnir nálgast Geir á hnjánum?!
Og í kvöld flutti Gísli Einarsson fréttamaður dularfulla "frétt" um hvernig reiði almennings kunni í framtíðinni að brjótast út.
Gott og gilt að fjalla um þetta og allt var framan af í lagi með viðtalið við félagsfræðinginn, en hlutur Gísla sjálfs var í besta falli misheppnuð fyndni en í versta falli svívirða við tilfinningar almennings.
Ég nenni ekki að rekja misheppnað raus hans um hvort hann ætti að éta eitthvert egg eða henda því í Alþingishúsið.
Það var svo barnalegt að það er fyrir neðan mína virðingu að hafa um það fleiri orð.
En að lokum, þegar félagsfræðingurinn hafði talað um þörf fólks fyrir uppgjör og að einhver viðurkenndi ábyrgð, þá sagði "fréttamaðurinn":
"Já, það þarf sem sagt einhver að lenda í gapastokk til að friða lýðinn."
Þetta sendi Ríkissjónvarpið út í sínum aðalfréttatíma.
Sveiattan!
Blogg
LÍTIÐ FYNDIÐ, GÍSLI!
19:42 › 9. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
