... í sjónvarpinu í gær sagði Geir Haarde allt í einu að nú væri "komið í ljós" að sama til hvaða ráðstafana hefði verið gripið, bankarnir allir þrír hefðu fallið samt.
Eins og venjulega er hann að verja orðspor hins mikla og ástsæla leiðtoga síns í Seðlabankanum, en í gær varð opinbert að bæði Sigurður Einarsson og Tryggvi Þór Herbertsson höfðu varað mjög eindregið við því að Glitnir yrði yfirtekinn á sínum tíma.
Og báðir bent á að það myndi enda með bankahruni, sem annars væri alls ekki óhjákvæmileg.
Og hruni íslenska hagkerfisins.
Eins og nú hefur komið á daginn.
Og fleiri höfðu varað við á sínum tíma.
En Geir hafði nú altso fundið út að þetta bankakerfi okkar hefði allt stefnt til andskotans af sjálfu sér og það hefði engu breytt hvað við hefðum reynt að gera.
Hann var næstum glaður á svipinn þegar hann sagði þetta.
Hinum mikla og ástsæla leiðtoga reddað! Þetta var þá ekki honum að kenna!
Fréttamaður spurði þá hvort nokkur ástæða væri til að fara í mál við Breta fyrir að hafa gert út af við Kaupþing, ef bankinn hefði undir öllum kringumstæðum verið dauðadæmdur.
Og Geir varð að bakka um leið, já, humm ha, kannski hefði verið hægt að bjarga Kaupþingi. Æjá, alveg rétt ...
Fréttamennirnir vorkenndu honum greinilega og spurðu ekki frekar.
Hvurslags leiðtogi er þetta á krísutímum, með leyfi?
Blogg
Í FURÐULEGU VIÐTALI ...
09:02 › 9. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
