ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

PÓSTUR TIL ALLRA ALÞINGISMANNA

11:15 › 8. nóvember 2008


Ég hef nú rétt í þessu sent tölvubréf til allra alþingismanna á Alþingi Íslendinga.

Það er svona:

"Virðulegi þingmaður.

Hvenær verður eftirlaunaósóminn frá 2003 afnuminn?

Því lengur sem það hneyksli viðgengst, því meiri svívirða við íslenskt fólk sem nú þarf að axla þungar byrðar.

Skýr svör óskast þegar í stað, nema frá Birgi Ármannssyni. Hann mun hvort sem er bara segja að málið sé gríðarlega flókið.

Virðingarfyllst,

Illugi Jökulsson"

Ef ég fæ einhver skýr svör mun ég birta þau hér.


- - -

Í upphaflega bréfinu sagði ég lögin óvart vera frá 2004. Sorrí! En það vita nú samt allir hvað ég átti við.

Ég er búinn að fá nokkur svarbréf. Björgvin G. Sigurðsson og Ásta R. Jóhannesdóttir lofa í raun bæði að þessi lög verði afnumin fyrir jól.

Árni Þór Sigurðsson bendir á að Vinstri grænir hafi flutt frumvarp um að afnema ósköpin og Ögmundur segir að það væri hægt strax á mánudag ef vilji væri fyrir hendi.

Kristinn H. Gunnarsson sendir þetta svar:

"Mig langar til þess að biðja þig að gera grein fyrir þeim atriðum í lögunum sem þú ert ósáttur við og þá hvernig þú telur að haga beri þessum málum í löggjöfinni.

Í gildi voru eldri lög, sem voru afnumin við löggjöfina í desember 2003, um sumt lík nýju lögunum og annað ekki. Það  er því alveg óvíst að þínum athugasemdum verði mætt með því að afnema lögin frá 2003 og láta eldri löggjöf taka gildi að nýju."

Þetta eru einhverjar málalengingar, held ég.
Fleiri svör hafa bæst við: Atli Gíslason, Katrín Jakobsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir benda öll á mjög svo þarft frumarp VG um málið.

Össur tekur undir orð samflokksmanna sinna að þetta verði afnumið fyrir jól. Það er gott og blessað, en af hverju þarf að bíða til jóla?

Steinunn Valdís samfylkingarkona tekur enda mun sterkar til orða í sínu svari: "Þetta er mál sem verður að ganga í strax.  Ég og fleiri innan Samfylkingar höfum talað mjög skýrt í þeim efnum.  Málið er ekki flókið - vilji er allt sem þarf. Ég geri það sem ég get innan míns flokks og á þingi."


Gott hjá henni.


Enginn sjálfstæðismaður hefur svarað, né framsóknarmaður.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?