Er nú ekki nokkuð ljóst að tafirnar, sem orðið hafa á alþjóðlegri aðstoð við Ísland, stafa ekki fyrst og fremst af því að hinir illu Bretar og Hollendingar séu að reyna að kúga okkur til að ganga að kröfum sínum?
Eins og Geir Haarde gefur ítrekað í skyn, án þess þó að fullyrða það berum orðum.
Vafalaust ganga bæði Bretar og Hollendingar hart fram, en tilfinningin segir manni þó að tafirnar séu ekki þeim að kenna.
Heldur því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og vinir okkar á Norðurlöndum treysta okkur ekki.
Af því hér er ekkert gert.
Ekkert upplýst, ekkert gert. Atvinnuöryggi eins manns er tekið fram yfir hag heillar þjóðar. Óskiljanleg þvermóðska í garð ESB kemur í veg fyrir tafarlausa aðildarumsókn.
Aðildarumsókn einn, tveir og þrír mundi sýna Norðurlandaþjóðunum fram á að okkur væri alvara.
Við ætluðum í alvöru að sópa út úr skúmaskotum okkar.
En það virðist Geir ekki vilja.
Blogg
HVAÐ ÞARF TIL AÐ ÞEIR TREYSTI OKKUR?
10:08 › 8. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
