Ekki vera of strangur við mótmælendur á Austurvelli, Hörður Torfason.
Framtak þitt er auðvitað frábært en ég held það sé óþarfi að brýna svona stöðugt fyrir fólki að gera ekkert "dónalegt".
Ég hef sjálfur þaggað niður í anarkistum sem voru með dónaleg frammíköll á þessum fundum, en það er allt í lagi að brenna einn og einn fána, svona stundum!
Og ég verð að viðurkenna að mér fannst flott gúmmískýið frá mótorhjólaköppunum í upphafi fundar.
Ég skildi ekki hvað Hörður hafði á móti því.
Ég veit reyndar ekki hvað mótorhjólakapparnir vildu segja með þessu, en þetta var líkast góðu leikhúsi: Maður vissi ekki endilega hver var meiningin, en þetta var áhrifamikið samt.
Og það var líka fallegt að sjá Bónusgrísinn blakta yfir Alþingishúsinu.
Mér fannst að vísu að þar með væri verið að kenna aumingja Jóhannesi í Bónus um eitthvað sem hann á alveg 100% enga sök á, en þetta var fallegt eigi að síður.
Nú heyri ég í útvarpinu um "stympingar" við lögregluna. Það er vitaskuld óþarfi og krakkalæti sem engu skila nema andartaks kikki fyrir blessuð börnin.
Þannig að kannski hefur Hörður eitthvað til síns máls. En þetta var allt frekar saklaust og fjölmiðlar stilltu sig um að gera veður úr þessu.
- - - -
Þegar ég skrifaði "fjölmiðlar stilltu sig um að vera veður úr þessu" var ég vitaskuld ekki búinn að frétta af Stöð 2 og "saurgun Alþingis" þar á bæ.
Blogg
EKKI OF STRANGUR, HÖRÐUR
15:47 › 8. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
