Gott hjá Kristínu Þorsteinsdóttur að vekja athygli á því í Mogganum í morgun hvílíkur skandall það er að Inga Jóna Þórðardóttir skuli nú hafa verið skipuð formaður Listahátíðar.
Við eigum fullt af vel menntuðu og hæfu fólki í þessa stöðu.
En þá er troðið í hana eiginkonu forsætisráðherrans.
Og það á þessum tímum þegar maður hefði haldið að það væri mikils virði fyrir Geir Hilmar að sýna fram á heiðarleika og öngva spillingu í sínum ranni.
Þessi ráðning sýnir að hann metur okkur fólkið í landinu nákvæmlega einskis. Þetta er bara spilling og svívirða og ennþá alvarlegri en ella af því þetta gerist á þessum tíma.
Nánast eins og blaut tuska framan í okkur.
Davíð er búinn að koma syni sínum í dómarastöðu og vinum sínum og bridgefélögum í góðar stöður sem þýða að við munum halda þeim uppi til æviloka.
Nú virðist Geir uppvís að sama tendens.
(Hann mun auðvitað segja að hann hafi ekkert haft um þetta að segja. Það kann að vera, formlega. En hann hefði þá átt að stoppa þetta, í ljósi sæmilegrar stjórnsýslu.)
Blogg
EIGINKONA GEIRS HAARDE
15:46 › 8. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
