Því Sjálfstæðisflokkurinn verður að komast í frí.
Hann er ekki bara "til trafala á strandstað", hann er beinlínis hættulegur.
Því hef ég nú myndað stjórn Samfylkingar, Vinstri grænna og (hluta) Framsóknarflokks.
(Framsóknarflokkurinn á náttúrlega ekkert gott skilið í ljósi sögunnar, veit ég það. Það er ekki með gleði sem ég gef flokknum sæti í stjórninni minni! En einhvern veginn verður að koma málum áfram, og við refsum flokknum svo bara í kosningum.)
Ráðherrum verður auðvitað fækkað og verða 9 talsins.
Samfylking fær fjóra ráðherra. Ingibjörg Sólrún verður forsætisráðherra, Össur, Jóhanna og Björgvin halda áfram.
Vinstri grænir fá þrjá ráðherra. Steingrímur verður utanríkisráðherra. Forn andstaða hans við NATO skiptir nú engu máli en Steingrímur er rétti maðurinn til að skera niður bruðl og óþörf sendiráð og efla svo samvinnu okkar við nána frændur okkur á Norðurslóðum. Svo geta Ögmundur og Katrín orðið ráðherrar.
Framsóknarmenn fá tvo ráðherra, Valgerði og einhvern annan. Guðni snýr sér að því að skrá ævisögu sína með hjálp Styrmis.
Þessi fjöldi ráðherra er heppilegur. Samfylking nýtur þess að vera stærst en hinir flokkarnir geta haldið aftur af henni, ef þarf.
Þessi stjórn verður mynduð um örfá grundvallaratriði:
Dyggilega velferðarhjálp við þá sem lengda í vandræðum næstu misserin.
Almennilega efnahagsstjórn með stofnun Efnahagsráðs þar sem sitja okkar færustu hagfræðingar og nokkrir valinkunnir erlendir sérfræðingar.
Uppgjör við hrunið, pólitískt, peningalegt, viðskiptalegt. Sannleiksnefnd af einhverju tagi frekar en refsivöndur Björns Bjarnasonar, þó ótvíræðum lögbrotum verði hegnt. Erlendir sérfræðingar fengnir til að stýra þessari vinnu.
Sótt um aðild að ESB. Þótt enginn fari fram á að Steingrímur og Ögmundur fyllist skyndlegri grind í garð Evrópusambandsins þurfa þeir aðeins að fallast á það viðhorf, að það sé svo mikilvægt að komast án tafar að því hvort aðild að ESB og upptaka evru sé okkur hagstætt núna, að það sé ekki eftir neinu að bíða með að leggja fram umsókn.
Meðan aðildarviðræður fara fram séu ráðherrar sammála um að rugga ekki þeim báti en að öðru leyti þurfa þeir ekki að vera einhuga í afstöðu sinni.
Vettvangur verði myndaður í samfélaginu þar sem almenningur og félagasamtök fái tækifæri til að taka þátt í endursköpun íslensks samfélags, með það að leiðarljósi að spilling, samtrygging, innmúranir og innvígslur einkenni Ísland aldrei framar.
Að vissum tíma liðnum, kannski hálfu ári, kannski um það leyti sem niðurstaða í ESB-viðræðum gæti svona nokkurn veginn legið fyrir) fari stjórnin frá og boði til nýrra kosninga.
Getur einhver haldið því fram að þessi stjórn væri ekki betri kostur en ráðleysi Sjálfstæðisflokksins?
Blogg
ÉG ER BÚINN AÐ MYNDA NÝJA RÍKISSTJÓRN
14:32 › 8. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
