Davíð Oddsson fékk rétt tæpar milljónir króna í laun frá okkur skattgreiðendum í október.
Fyrir sín vel unnu störf. Hver afrek hans voru í október þarf ekki að orðlengja að ráði.
Þessa ályktun dreg ég af tekjublaði Mannlífs, sem ég rakst á, þar sem kemur fram að hann hafi fengið 1.790.215 krónur á mánuði á síðasta ári.
Síðan hafa laun hans reyndar hækkað. Ég er ekki alveg klár á hve há þau eru nú, en miðum við rétt tæpar tvær.
Hann væri sem sagt tvo og hálfan mánuð að vinna fyrir þeim ævisparnaði sem roskni maðurinn í sjónvarpsfréttunum í Kringlunni tapaði.
Það sem af er nóvember erum við búin að borga Davíð 500.000 fyrir störf sín.
Þessar tvær milljónir eru reyndar ekki eini kostnaðurinn sem við höfðum af formanni bankastjórnar Seðlabankans í október.
Við þurfum líka að borga laun tveggja lífvarða sem gera lítið annað en elta hann á röndum.
Og við borgum líka fyrir aukna löggæslu sem íbúar við Fáfnisnes hafa svo sannarlega orðið varir við síðustu vikurnar.
Þeir eru farnir að geta stillt klukkuna sína eftir lögreglubílunum sem renna eftir götunni á tveggja tíma fresti.
Blogg
VIÐ BORGUÐUM DAVÍÐ TÆPAR TVÆR MILLJÓNIR Í OKTÓBER
09:23 › 7. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
