ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NÆSTI VENDIPUNKTUR

15:17 › 7. nóvember 2008


Undanfarin misseri hafa menn gert því skóna að næsti stóri vendipunktur íslenskra stjórnmála yrði þegar Sjálfstæðisflokkurinn sætti sig við ESB.

Nú virðast aftur á móti líkur á því að það muni á næstunni skipta sáralitlu máli hvaða stefnu Sjálfstæðisflokkurinn tekur í málum ESB, eða hvaða stefnu Sjálfstæðisflokkurinn tekur yfirleitt.

Næsti stóri vendipunktur íslenskra stjórnmála verði aftur á móti þegar Vinstri grænir sætta sig við ESB.

Þá meina ég ekki endilega að allir í flokknum þurfi endilega að umturnast og sannfærast í einu vetfangi um fagnaðarerindi ESB.

Heldur bara að flokkurinn horfist í augu við hve brýnt lífsspursmál það er að sækja um aðild sem fyrst - svo við vitum þá eitthvað í hausinn á okkur, um hvað aðild þýðir, kostir og gallar, en séum ekki að fabúlera út í loftið.

Unga fólkið í flokknum viðurkennir nú þegar að andstaða þess við ESB hafi fyrst og fremst stafað af því að eldri kynslóðin í flokknum var svo hörð á móti Evrópusambandinu. Sjálft hafi unga fólkið ekkert sérstakt á móti ESB.








ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?