ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HUGARÓRAR DAVÍÐS

14:24 › 7. nóvember 2008


Partur af því áhrifavaldi sem Davíð Seðlabankastjóri og Zetuskrifarar hans hafa haft yfir Geir Haarde hefur falist í hótunum um að ef hróflað verði við Davíð muni hann stofna nýjan flokk.

Frá þessu hef ég greint áður.

Bæði Davíð og Geir voru orðnir svo helsjúkir af vissunni um hið óendanlega áhrifavald Davíðs að þeir trúðu því að meirihluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins myndi umsvifalaust ganga til liðs við Davíð í nýja flokknum - eða einfaldlega steypa Geir af stóli í Sjálfstæðisflokknum.

Síðan átti að setja Geir kurteislega til hliðar, og setja Þorgerði Katrínu mjög ókurteislega til hliðar.

Þá átti að leita til Guðna Ágústssonar. Hann er nú þegar kominn meira en hálfur í lið Zetuskrifara og átti að redda amk flestum þingmönnum Framsóknar.

Og Steingrímur J. átti að koma til liðs við hinn nýja Borgaraflokk í krafti andstöðu sinnar við Evrópusambandið.

Síðan þetta plott var sett saman er ljóst orðið að það er reist á algjörum hugarórum.

Varla nokkur einasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins mun fylgja Davíð.

Flestallir þingmenn Framsóknar munu fylgja Valgerði fremur en Guðna.

Og Steingrímur J. Sigfússon er auðvitað alltof skynsamur til að láta lokka sig út í einhverja svona vitleysu til að bjarga leifunum af andliti Davíðs Oddssonar. Þótt Steingrímur hafi verið býsna harður andstæðingur ESB veit hann ósköp vel að þann kost verður að ræða, ekki útiloka - eins og Zetuskrifararnir vilja.

Svo Geir þarf ekki að vera hræddur við neitt. Þetta veit hann áreiðanlega. Eftir hverju er hann þá að bíða?

Burt með Seðlabankastjórann!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?