ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HINN ÍSLENSKI OBAMA?

10:49 › 7. nóvember 2008


Við verðum að viðurkenna það:

Það er yfirleitt voða stutt í fyrirlitningu okkar á Bandaríkjamönnum.

Okkur finnst þeir upp til hópa grunnhyggnar hópsálir, yfirborðskenndir, væmnir og ofstækisfullir í senn, svolítið eins og stór börn.

Börn sem ráða ekki við kraftana í sjálfum sér og geta því verið varasöm.

Og auðvitað geta Bandaríkjamenn verið skelfilega vitlausir. Nokkur dæmi um það má til dæmis finna í nýja SKAKKA TURNINUM, svo ég auglýsi nú blaðið mitt.

Meðan baráttan fyrir forsetakosningarnar stóðu yfir, þá hugsaði ég stundum soldið yfirlætislega:

"Voða er skringilega mikið mál að Obama skuli vera svartur í aðra ættina. Hvort er það merki um kjánaskap eða leynda fordóma að það skuli virkilega skipta máli? Ósköp eru þeir gamaldags, þessir Kanar."

En nú horfist ég allt í einu í augu við að kannski verðum við að gefa blessuðum Ameríkönum meira kredit en við kannski kjósum.

Eða hefði það gerst víða á Vesturlöndum að sonur innflytjanda frá Kenía, maður alinn upp við frekar kröpp kjör og öngva silfurskeið í munni, næði æðstu metorðum í einhverju landi á svo skömmum tíma?

Og það með jafn viðkunnanlegan boðskap og Barack Obama hefur fram að færa?

Mundi það til dæmis geta gerst hér á landi?

Hér á landi þar sem við erum svo föst í viðjar úreltrar og forpokaðrar flokkapólitíkur að þótt efnahagslíf okkar sé hrunið, þá hefur almenningur enn engin samtök mynduð til að tala sínu máli.

Lætur yfir sig ganga þótt gamla settið sé enn að vasast í hlutunum.

Enginn óvæntur Obama risið upp.

Ég er ekki að biðja um mannkynsfrelsara. Ég þoli ekki mannkynsfrelsara. Ég er heldur ekki að biðja um "sterkan leiðtoga". Ég beinlínis hata "sterka leiðtoga". Ég er bara um biðja um einhvern sem gæti komið úr óvæntri átt og kannski blásið soldið á hið forstokkaða flokkakerfi, sem ótrúlegt nokk sýnist líklegt til að halda velli þrátt fyrir hrunið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?