ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ERU ÞETTA VIÐ?

13:44 › 7. nóvember 2008


Mótmæli verða á Austurvelli klukkan þrjú á morgun.

Klukkan eitt verður reyndar borgarafundur í Iðnó, og hálf þrjú ætla ungir Vinstrigrænir að hittast á Austurvellinum.

(Mikið er reyndar þroskamerki ungra VG að ætla að opna á möguleikann á Evrópusambandinu, en loka sig ekki af úti í horni með það mál.)

Davíð Oddsson komst upp með að hæðast að mótmælendum fyrstu tvær vikurnar.

Geir Haarde hefur hingað til komist upp með að láta eins og hann viti ekki af þessu.

Enda mála sannast að alltof fáir hafa mætt, þó þeim hafi vissulega farið fjölgandi.

Nú er aftur á móti tækifærið.

Ef menn gegna ekki sinni borgaralegu skyldu og mótmæla ástandinu í þúsundavís á morgun, þá eigum við bara skilið þau stjórnvöld sem við höfum.

Sem virða okkur varla viðlits í mesta efnahagssjokki lýðveldisins.

Sem borga óhæfum og hættulegum Seðlabankastjóra milljónir í hverjum mánuði, af því þau þora ekki að reka hann. Af því hollusta Geirs Haarde við hann er meiri en hollusta hans við okkur.

Sem láta ráðskast með bankana okkar, skuldirnar okkar, atvinnumöguleika okkar, án þess að við fáum neitt af því að vita.

Hver einasta sála sem er ekki sátt við ástandið, verður að mæta í þetta sinn.

Í þetta sinn skiptir ekki öllu máli hvers við krefjumst. Hvort við viljum til dæmis ganga í ESB eða ekki. Hvort við erum Vinstri græn eða ekki, Samfó eða sjálfstæðismenn.

Það skiptir hins vegar öllu máli að láta nú í okkur heyra.

Ekki jarma bara.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?