ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ALLT HÆGT - BARNASAGA

12:20 › 7. nóvember 2008


Við verðum vitaskuld að gæta þess að hræða ekki börnin með krepputali og beiskju og biturð.

Að gamni, þá set ég hérna barnasögu sem ég skrifaði einu sinni og rakst um daginn á í tölvunni minni.

Þetta átti að eins konar framhald af barnabókinni Litli bangsi sem kom út fyrir 4-5 árum með skemmtilegum myndum eftir Inga Jensson.

En ég fínpússaði aldrei söguna og hún dagaði upp í tölvunni.

Ef einhver vill prenta hana út og lesa hana fyrir börnin sín í kvöld, er það ekki aðeins öllum heimilt, heldur væri mér mesta ánægja.

Þetta er altso saga fyrir þann aldursflokk sem enn vill láta lesa fyrir sig sögur. Ætli lesturinn taki ekki 5 mínútur eða þar um bil.

Hún heitir ekkert sérstakt, held ég. Kannski Litli bangsi og tunglið.

- - -

Einu sinni var lítill
bangsi sem hét Litli bangsi. Besti vinur hans var stór bangsi sem hét Stóri
bangsi.

Stóri bangsi vissi ekkert
skemmtilegra en að veiða fisk í ánni sem rann um skóginn þar sem þeir bjuggu.
Litli bangsi vissi margt skemmtilegra en að veiða fisk.

En til að gleðja vin sinn
fylgdi hann Stóra bangsa oftast til veiðanna.

Einu
sinni höfðu Litli bangsi og Stóri bangsi setið á árbakkanum heilan dag að veiða
fisk. Það var farið að rökkva og tunglið var komið upp. Litli bangsi horfði
hugfanginn á það. 

Þá
sagði Litli bangsi: "Mikið væri gaman að komast upp í tunglið." 

Stóri
bangsi var annars hugar og muldraði bara: "Heldurðu það?" 

"Já,"
sagði Litli bangsi. "Ég mundi vilja klifra upp til tunglsins og svo mundi
ég vinka til þín frá tunglinu." 

"Það
er ekki hægt að klifra upp til tunglsins," sagði Stóri bangsi. "Það
er svo langt í burtu." 

"En
ef ég klifra nú upp í hæsta tréð í skóginum?" sagði Litli bangsi. "Þá
mundi ég ábyggilega geta teygt mig upp í tunglið." 

"Nei,"
sagði Stóri bangsi ákveðinn og stóð á lappir. "Það er ekki hægt. Tunglið
er lengst úti í geimnum. Lengst lengst í burtu. Til að komast þangað þarf maður
geimskip." 

Litli
bangsi varð súr í bragði. Hann langaði svo dæmalaust mikið upp í tunglið, þó hann ætti ekkert geimskip.

Meðan
Stóri bangsi brá sér bak við runna, eitthvað að gera, þá hljóp Litli bangsi til
kengúru sem hann sá koma hoppandi eftir árbakkanum í rökkrinu. 

"Sæl,
kengúra," sagði Litli bangsi. "Ég heiti Litli bangsi og mig langar
svo að komast til tunglsins. Mig langar svo að vinka vini mínum Stóra bangsa
ofan úr tunglinu. En hann segir að ég geti ekki klifrað upp í tunglið.“

„Jahá,“
sagði kengúran.

„Þú
ert svo dugleg að hoppa,“ hélt Litli bangsi áfram. „Mætti ég fá að smeygja mér
ofan í pokann þinn og svo hoppar þú með mig upp til tunglsins?" 

Kengúran
rak upp stór augu. 

"Nei,"
sagði hún. "Víst get ég hoppað hátt. En ég get samt ekki hoppað alla leið
til tunglsins. Ég get ekki einu sinni hoppað hálfa leiðina þangað. Tunglið er
svo langt úti í geimnum að þangað kemst enginn nema í geimskipi." 

Og
svo hoppaði kengúran burt. Þá kom Litli bangsi auga á gíraffa sem var að rífa í
sig lauf af trjánum í rökkrinu. 

"Sæll,
gíraffi," sagði Litli bangsi. "Mig langar svo mikið upp í tunglið svo
ég geti vinkað þaðan til hans Stóra bangsa vinar míns.“

„Ja,
seisei,“ sagði gíraffinn.

Litli
bangsi hélt áfram: „Ef ég fengi nú að klifra upp eftir langa hálsinum á þér,
heldurðu þá ekki að ég gæti teygt mig upp til tunglsins?" 

"Nei,"
sagði gíraffinn. "Þannig er ekki hægt að komast upp til tunglsins. Tunglið
er langt langt úti í geimnum. Þangað kemst enginn nema með geimskipi." 

Svo
smellti gíraffinn í góm og hélt áfram að næsta tré. Litli bangsi hnyklaði
brúnir, fýldur á svipinn. Hann langaði svo upp til tunglsins. 

Þá
kom Litli bangsi auga á górilluapa sem paufaðist um kjarrið í rökkrinu.
Górilluapinn var bæði stór og sterkur. 

Litli
bangsi hljóp til górilluapans. 

"Sæll,
górilluapi," sagði Litli bangsi. "Mig langar svo mikið að komast til
tungslins. Það er svo fallegt og mig langar svo að vinka vini mínum Stóra
bangsa ofan úr tunglingu.“

„Fussumsussumtrussumbuss,“
tuldraði górilluapinn.

Og
Litli bangsi sagði: „Þú ert svo stór og sterkur. Heldurðu að þú gætir kannski
fleygt mér alla leið upp til tungslins?" 

"Nei,"
sagði górilluapinn. "Þannig er ekki hægt að komast til tunglsins. Ég er að
vísu mjög sterkur en ég get samt ekki kastað þér alla leið til tunglsins. Það
er svo voðalega langt úti í geimnum. Þangað kemst enginn nema á
geimskipi." 

Litli
bangsi settist niður og fékk tár í augun. Hann langaði svo upp til tunglsins. 

Þá
sá Litli bangsi hvar blettatígur var að búa sig til svefns bak við tré í
rökkrinu. Þá glaðnaði yfir honum og hann hljóp til blettatígursins. 

"Sæll,
blettatígur," sagði Litli bangsi. "Mig langar svo dæmalaust mikið að
skreppa upp til tunglsins. Það skín svo fallega og mig langar að veifa til
vinar míns Stóra bangsa frá tunglinu.“

„Það
var nefnilega það,“ sagði blettatígurinn.

„Einmitt,“
sagði Litli bangsi. „Og þú ert svo fljótur að hlaupa. Mætti ég kannski fá að
setjast á bakið á þér og svo hleypur þú og hleypur og hleypur svo hratt að ég
kemst alla leið til tungslins?" 

"Nei,"
sagði blettatígurinn. "Þannig er ekki hægt að komast til tungslins. Ég er
vissulega mjög fljótur að hlaupa. Ég hef mælst mest á 126 kílómetra hraða á
klukkustund á sprettinum. En samt get ég ekki hlaupið alla leið til tunglsins.
Þangað kemst enginn nema með geimskipi."

Svo skokkaði blettatígurinn
burt á 6,7 kílómetra hraða á klukkustund.

Æ,
hvað þetta var leiðinlegt! hugsaði Litli bangsi. Hann langaði svo til
tunglsins. En geimskip mundi hann aldrei eignast. Og hann ráfaði leiður á
svipinn inn á milli trjánna. 

Allt
í einu sá Litli bangsi að hann var kominn að hæsta trénu í skóginum. Og hann
beit á jaxlinn og klöngraðist upp í tréð. Smátt og smátt varð hann öruggari með
sig. Hann hafði aldrei klifrað svona hátt. Já, hann klifraði alla leið upp í
toppinn á hæsta trénu í skóginum. 

Þá
blasti tunglið við honum, stórt og fallegt og skínandi. 

Og
Litli bangsi teygði sig eins langt og hann komst og náði taki á tunglinu. Það
ruggaði örlítið en samt ekkert að ráði. Og Litla bangsa tókst að klifra úr trénu upp
í tunglið án þess að detta. 

Litli
bangsi horfði yfir skóginn frá tunglinu. Þá sá hann Stóra bangsa vin sinn sem
var að svipast um eftir honum í rökkrinu. 

"Halló,
Stóri bangsi!" hrópaði Litli bangsi. "Ég er hérna, ég er uppi í
tunglinu. Mér tókst að klifa upp í tunglið!" 

Og
Stóri bangsi leit upp og varð alveg dolfallinn á svipinn. 

"Ertu
þarna, Litli bangsi?" kallaði hann. "Svei mér þá, þú hefur komist upp
til tunglsins!" 

"Já,"
hrópaði Litli bangsi á móti. "Ég klifraði bara upp í hæsta tréð í skóginum
og náði þá upp til tunglsins." 

Og
svo hoppaði Litli bangsi af tunglinu beint í fangið á Stóra bangsa vini sínum.

"Það er allt hægt, Stóri bangsi," sagði Litli bangsi. "Þú sérð það."



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?