ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BARIST UM VÖLDIN Á TITANIC

14:56 › 6. nóvember 2008


Ef það er rétt - sem margir erlendir fjölmiðlar fullyrða - að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé búinn að samþykkja aðstoðina við okkur er ljóst að Geir Haarde lýgur meira en hann mígur.

Og að hann stendur þá í einhverjum hráskinnaleik hér innanlands sem er beinlínis stórhættulegur fyrir okkur almenning í landinu.

Einhverju innanflokks plotti í Sjálfstæðisflokknum, að því er virðist.

Eða þurfa gæðingar meiri tíma til að tæta sundur skjöl og "réttu auðmennirnir" meiri tíma til bjarga eigum "sínum"?

Okkur er sýnd óendanleg niðurlæging, hvað svo sem er rétt.

Það er litið á okkur með leiksoppa í valdabrölti skipstjórnarmanna á Titanic.

Það fjarar æ meir undan Geir. Ef hann tekur ekki hið bráðasta á sig rögg og kemur heiðarlega fram við okkur, þá mun hann ekki eiga sér viðreisnar von.

Og af hverju tekur Samfylkingin ekki í taumana??


- - -

Viðbót síðar:


Nú hefur talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðs víst staðfest í viðtali við Viðskiptablaðið að fréttin um að búið sé að ganga frá láninu að utan sé röng.

En ekki fylgir sögunni af hverju Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er farinn að senda frá sér rangar fréttir.

Vona allavega að mótmælafundur við breska sendiráðið standi fyrir durum ...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?