Það er EKKI búið að ganga frá láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða aðstoð hans yfirleitt.
Það er EKKI búið að segja okkur hvað í því muni felast.
Það er EKKI búið að koma gjaldeyrisverslun við útlönd í lag.
Það er EKKI búið að skipa rannsóknarnefnd sem fari yfir allar hliðar bankahrunsins, peningalegar sem pólitískar.
Það er EKKI búið að opna einhvers konar vettvang þar sem almenningur getur fengið upplýsingar um hvað sé að gerast í kerfinu.
Það er auðvitað EKKI búið að reka Seðlabankastjórnina sem hefur klúðrað öllum málum stórfenglega.
Þetta er bara partur af því sem EKKI er búið að gera.
En ætti að vera búið fyrir löngu.
Endilega stingið upp á fleiru sem EKKI er búið að gera.
En listinn yfir það sem er búið að gera er líklega heldur stuttur.
Blogg
ÞAÐ SEM EKKI ER BÚIÐ AÐ GERA!
12:09 › 5. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
