ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NÆST BESTA BLAÐ Í HEIMI

12:35 › 5. nóvember 2008



Á fimmtudaginn var varð tímaritið mitt SKAKKI TURNINN fyrst fjölmiðla í heiminum til að lýsa afdráttarlaust yfir sigri Baracks Obama í forsetakosningunum vestra.

Hélt ég.

Þetta gerðum við með því að setja Obama í gervi Sáms frænda framan á nýjasta hefti SKAKKA TURNSINS sem er að verulegum hluta helgað skrýtnum hlutum úr sögu, menningu og samfélagi vestanhafs.

SKAKKI TURNINN fór í prentun á fimmtudaginn svo við urðum að taka sénsinn og útnefna Obama sigurvegara fimm dögum fyrir kosningarnar sjálfar.

Það reyndist vitaskuld rétt hjá sérfræðingum vorum í bandarískum stjórnmálum.

Á hinn bóginn kom á daginn að þrátt fyrir sína umtalsverðu dirfsku var SKAKKI TURNINN ekki allra fyrstur til að lýsa yfir sigri Obama.

Við fréttum af því að tímarit nokkurt í Mexíkó hefði gert það á undan okkur.

Við hjá SKAKKA TURNINUM sættum okkur að vísu vel við að vera í öðru sæti, og reyndar er einkunnarorð blaðsins (fyrir utan "Tímarit um allt") einmitt Næstbesta blað í heimi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?