Í fyrstu mætti ætla að þetta hér væri skrýtið:
Að ég skuli geta blaðað tiltölulega fljótt yfir blaðsíðu eftir blaðsíðu af fréttum blaðanna í morgun um misjafnlega sjabbí aðfarir sem peningamenn notuðu til að afskrifa skuldir eða láta þær hverfa.
En hins vegar lesa af mikilli athygli og tilfinningaþunga frétt í DV um litla stelpu sem átti kött sem týndist og fannst í Kattholti en af því mamma stelpunnar hafði ekki efni á að leysa hann út alveg á nóinu, þá ...
Og svo framvegis.
Ég vona að þetta sé allt einhver misskilningur. Ég veit vel að í Kattholti er unnið mikið og óeigingjarnt hugsjónastarf fyrir Íslendinga af kattakyni.
En þessi kattarfrétt skipti mig semsé eiginlega meira máli yfir hafragrautnum í morgun en fjármálahneykslin.
Og er þó á sinn hátt angi af þeim.
Til að byrja með virtist kreppan ætla að verða köttum góð. Fréttir bárust af því að kettirnir í Kattholti ættu allt í einu miklu betri möguleika á að eignast heimili en áður.
Veltiár í Kattholti, virtist vera. Og gott fyrir kettina.
Kannski hefur Kattholt farið svolítið offari í sínu "góðæri", eins og bankarnir.
Blogg
KETTIR Í KREPPU
08:17 › 5. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
