ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

JÁTNING SYNDARA: "ÉG FÓR Í HAGKAUP Í GÆR"

17:31 › 5. nóvember 2008

Í dag var ég á fundi og þegar venjulegum fundarefnum var lokið tóku fundarmenn spjall saman.

Auðvitað um "ástandið".

Og hvernig hver og einn reyndi að hegða sér eins skynsamlega og hægt væri.

Og einn karlmaðurinn á fundinum dæsti skömmustulegur, leit í kringum sig, og sagði svo: "Ég er orðinn svo þreyttur á að velta fyrir mér hverri krónu, að ég fór meira að segja ..."

Nú lækkaði hann róminn enn meira og drúpti höfði í skömm áður en hann hélt áfram:

"Að ég fór meira að segja í Hagkaup í gær!"

Kona hans, sem líka var á fundinum, leit snöggt upp og sagði hvasst: "Þú sagðir mér það ekki!"

Hann kinkaði kolli.

"Ég veit það. Ég gat það bara ekki ..."



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?