Þetta er sönn saga:
Roskinn maður hringdi fyrir fáeinum dögum í Glitni og talaði við þjónustufulltrúa. Hann sagðist ekki lengur geta borgað myntkörfulánið sem hann hefði tekið með milligöngu bankans.
Hann kvaðst eiga fimm milljónir í peningabréfum í bankanum og bað nú þjónustufulltrúann vinsamlega að taka þá peninga og láta myntkörfulánið hverfa í eitt skipti fyrir öll.
Þjónustufulltrúinn ræskti sig, hummaði og ha-aði.
"Sko, þessar fimm milljónir í peningabréfum, þær eru sko ... ja, þær eru ekki lengur ... sko, þetta er bara ekki hægt, því miður. Þessar milljónir voru sko í Gamla Glitni."
"Það er allt í lagi," sagði maðurinn, "það var líka hann Gamli Jón sem tók þetta lán."
Blogg
GAMLI JÓN OG GAMLI GLITNIR
20:27 › 5. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
