Meira hvað allir bloggararnir eru ægilega spekingslegir og varkárir út af kjöri Baracks Obama í Hvíta húsið.
"Já, humm, ha, þetta er vissulega tímamót, já, vissulega, og vissulega mun ýmislegt breytast, tel ég, já, en vissulega engin ósköp, ekki svona fyrsta kastið, humm, ha, já og fúff og pa."
Það er eins og þeir séu allir í viðtali hjá Katie Couric og vilji ekki fyrir nokkurn mun hlaupa á sig.
Það var nú varla fyrir svona varkárni sem bloggsíður voru fundnar upp.
Því mun ég nú kveða sterkt að orði:
Það er mín trú að kjör Obama verði til þess að ótrúlega miklar breytingar verði á ótrúlega skömmum tíma.
Eftir hálft ár verði allt, allt öðru vísi um að litast í veröldinni.
Kreppan verði í andarslitrunum, og allt á blússandi uppleið.
(Nema náttúrlega hjá okkur. Hér tókst að myrða allt atvinnulífið áður en kreppan fór furðu fljótt að linast.)
Bjartsýni og dugur ríkjandi í veröldinni.
Kreppan er hvort sem er að verulegu leyti huglæg.
Mér finnst þetta miklu skemmtilegri spá en þessi voðalega varkárni hinna spakvitru bloggara.
Þó ekki ætli ég beinlínis að hengja mig upp á að hún rætist ...
Blogg
ALLT Á BLÚSSANDI UPPLEIÐ MEÐ OBAMA!!
10:26 › 5. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
