ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞETTA GENGUR EKKI, ALLS EKKI

13:55 › 4. nóvember 2008

Það gengur ekki að ráðamenn þessarar þjóðar sitji einhvers staðar inni á skrifstofum sínum og véli með framtíð þjóðarinnar án þess að við vitum neitt hvað á seyði er.

Þeir segja sem svo: "Við erum í óða önn að bjarga verðmætum. Við megum ekki vera að því að halda endalausa blaðamannafundi."

Jæja já? Hvar eru þessi verðmæti sem þeir hafa bjargað? Það fer að verða forvitnilegt að sjá þau.

Ég hef nú satt að segja grun um að partur af annríki a.m.k. sumra ráðherranna stafi af því að þeir séu að olnboga sig áfram hver fram fyrir annan.

Standi í prívat valdabaráttu þegar þeir ættu að ástunda ný og heiðarleg vinnubrögð.

Og alla vega er ekkert mikilvægara fyrir ráðamenn en að halda góðu sambandi við þjóðina.

Ég hef þegar furðað mig á því af hverju almenningur er ekki þegar búinn að stofna samtök sem mundu krefjast þess að fá aðgang að ákvörðunum stjórnvalda.

Fjölmenn samtök almennings ættu engu minni rétt en þeir fúlu stjórnmálaflokkar sem fyrir eru.

En fyrst engin slík samtök fram ættu stjórnmálaflokkarnir samt að sjá sóma sinn í að halda almenningi vel upplýstum.

Það er skylda þeirra.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?