Fyrir utan margvísleg glappaskot sín áður, þá hefur Davíð Oddsson síðustu vikur sýnt í starfi Seðlabankastjóra vanskilning, vanrækslu, vangá og örugglega margt fleira sem byrjar á van-.
Já, til dæmis vankunnáttu.
Algjöra vankunnáttu í efnahagsstjórnun.
Hann ber, fremur en nokkur annar einstaklingur, ábyrgð á algjöru hruni íslensku bankanna og því að lífskjör almennings hafa nú stórum versnað.
Þetta vita allir, bæði innanlands og utan.
Samt lætur Geir Haarde hann bægslast enn í embætti Seðlabankastjóra þar sem hann heldur áfram að vinna skaða nánast upp á hvern dag.
Sú furðulega staðreynd að Geir hefur ekki rekið hann lýsir í raun algjörri fyrirlitningu forsætisráðherrans á almenningi á Íslandi. Þeim almenningi sem mun nú í mörg ár þurfa að þola á eigin skrokki fullkomna vanhæfni Davíðs í efnahagsstjórnun.
Jafnvel þó Geir væri í alvöru þeirrar skoðunar að Davíð gæti eitthvað í efnahagsstjórn, þá ætti Geir samt að reka hann í virðingarskyni við almenning í landinu og tapaða milljarða hans.
Með því að gera það ekki, þá gerir Geir afar lítið úr tilfinningum alls almennings á Íslandi.
Svo mjög vægt sé nú til orða tekið.
En hvers vegna í ósköpunum? Ein tilraun sem ég hef heyrt til að skýra þessa furðulegu staðreynd gengur út á Davíð hafi - líkt og J.Edgar Hoover yfirmaður FBI í Bandaríkjunum - safnað óþægilegum upplýsingum um samferðamenn sína í svartar möppur, til að koma í veg fyrir að hann yrði nokkurn tíma rekinn.
Þessu trúi ég náttúrlega ekki. En sú staðreynd að svona sögur spretta fram sýna hve algjörlega þrumu lostnir allir eru yfir því að Seðlabankastjórinn sé ekki sendur heim.
Blogg
Á DAVÍÐ SVARTAR MÖPPUR?
07:41 › 4. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
