ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

DAVÍÐ HÓTAR AÐ STOFNA NÝJAN FLOKK

14:45 › 4. nóvember 2008

Af hverju Geir Haarde rekur ekki Davíð úr Seðlabankanum?
Jú, segja heimildarmenn mínir eigi allfjarri forsætisráðherranum, það vildi hann svo gjarnan gera.

En Davíð hefur látið þau orð berast til hans að verði honum vísað úr Svörtuloftum, þá muni hann umsvifalaust stofna nýjan stjórnmálaflokk.

Og það fylgir sögunni að Davíð fullyrði að nýi flokkurinn verði á ekki nema sólarhring orðinn stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.

Illa er nú bersýnilega komið fyrir hinum mikla og ástsæla leiðtoga, að hann skuli geta hugsað sér að enda sem hvert annað klofningsframboð, a la Albert Guðmundsson.

Nafnið Borgaraflokkurinn er náttúrlega á lausu ...!

En sé þetta rétt (og það hefur Trésmiðjan ekki ástæðu til að efast um) þá virðist Geir Haarde taka hagsmuni Sjálfstæðisflokksins fram yfir hagsmuni þjóðarinnar með því að hika við að kljúfa flokkinn.

En verður það endilega svo slæmt fyrir flokkinn að losna við Zetuskrifarana?




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?