ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VIÐ ÞURFUM STJÓRNLAGAÞING

10:34 › 30. nóvember 2008


Íslenska þjóðin þarf vettvang til að setja fram kröfur um bætt siðferði í stjórnmálum, efnahagslífi, kaupsýslu og samfélaginu almennt.

Og aukið lýðræði, með miklu virkari þátttöku almennings en verið hefur.

Krafan um þetta snertir ekki nema að hluta til kröfuna um nýja ríkisstjórn og kosningar, en það má ekki láta hana hverfa í skuggann af öðrum viðfangsefnum.

Sér í lagi ekki þegar einhvern tíma fer (vonandi) að hægjast um.

Þá munu fulltrúar gamla kerfisins vonast til þess að við slökum á og leyfum þeim að makka með þetta eins og fyrr.

Það má ekki verða. Einhvers konar stjórnlagaþing gæti verið þessi vettvangur. Sem starfaði sjálfstætt að því að setja lög og reglur fyrir framtíðina, ekki beint að klóra okkur upp úr feni nútímans eða refsa sökudólgum fortíðarinnar.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?