08:23 › 30. nóvember 2008
Félagið Stím verður varla kallað annað en risastór barbabrella.
Glitnir tekur á sig annan lit.
Kaupir svo í sjálfum sér.
Með láni frá sjálfum sér og veði í sjálfum sér.
Svona að mestu leyti.
Þegar þetta gerðist var Glitnir nýbúinn að skipta um bankastjóra.
Bjarni Ármannsson var leystur út með hestaskál upp á 900 milljónir.
En Lárus Welding sóttur í Landsbankann.
Hann fékk auðvitað höfðingleg laun, kauprétti og hvað þetta heitir, en líka 300 milljónir fyrir að fara yfir byrjunarreitinn.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
