ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BARBABRELLA FRIKKA SÓP

09:28 › 30. nóvember 2008


Sjálfstæðisflokkurinn er svo andlega krumpaður að ennþá má enginn forystumaður segja hreint út að nauðsynlegt sé að sækja sem fyrst um aðild að Evrópusambandinu.

Svo Davíð verði ekki reiður.

Þorgerður Katrín hefur komist næst því, enda hefur hún þegar bakað sér grimmilega reiði og heift Davíðs.

En jafnvel hún tekur ekki sterkar til orða en svo að nauðsynlegt sé að skoða hvort nauðsynlegt sé að skoða ... eitthvað í þá áttina.

Og þótt landsfundurinn í janúar eigi augljóslega að setja nýjan kúrs Sjálfstæðisflokksins í málinu, hefur enginn forystumaður af neinu tagi sagt afdráttarlaust: "Já, auðvitað eigum við að sækja um aðild, þó ekki væri nema til að sjá svart á hvítu hvað aðild hefur í för með sér."

Því við getum kjaftað okkur hás hér heima, við munum samt aldrei sjá hina raunverulegu kosti fyrr en í aðildarviðræðum. Sem við getum þá samþykkt eða hafnað.

En nú hefur forysta Sjálfstæðisflokksins loksins, loksins fundið brúklega leið til að "opna umræðuna".

Einn maður hefur fundist til að lýsa yfir stuðningi við umsókn að ESB.

Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar!

Í eldgamla daga skömmuðu Sovétmenn Albani þegar þeir vildu í raun skamma Kínverja.

Það er einhver svoleiðis keimur af þessu.

Geir veit að hann þarf að skipta um skoðun, og sendir þá Frikka Sóp af stað.
Nema Friðriki hafi blöskrað aðgerðaleysi í Geir og farið af stað sjálfur.

Til að gá hvað Davíð gerir. Davíð getur nefnilega ekki gert Friðriki neitt. Friðrik á bara tvö ár eftir í sín fínu eftirlaun. Svo verður hann bara sendiherrafrú í rólegheitum.

Sigríður Dúna var meira að segja skipuð sendiherra af Davíð sjálfum, sendiherraárið mikla!

Örugglega mjög sniðugt allt saman hjá Evrópusinnum Sjálfstæðisflokksins.

Barbabrella jafnvel!

Geir verður mjór og spengilegur Friðrik Sophusson!

En miklu hreinlegra og heiðarlegra hefði samt verið að tala hreint út, ekki fara einhverjar andlegar krókaleiðir.

Tími pólitískra loftfimleika er liðinn.

Ætla ég að vona!





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?