ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

STYTTIST HJÁ GEIR?

08:04 › 3. nóvember 2008


Eitt er skrýtið.
Við héldum að Geir Haarde væri svo skynsamur.

Sitthvað mætti upp á hann klaga, eins og gengur, en skynsamur væri hann þó.

Nú er aftur á móti ljóst að Geir er frekar óskynsamur.

Og kannski rúmlega það.

Hann skilur í fyrsta lagi ekki hve stórkostlegt tjón hann hefur gert íslensku þjóðinni með því að hafa ekki látið undan látlausum kröfum um að Seðlabankastjóra yrði sagt upp.

Látum það nú samt vera.

Það mun bara taka íslensku þjóðina fimm ár eða svo (kannski tíu) að vinna sig út úr þeim mistökum Geirs.

Við gerum það með glöðu geði fyrir þá Geir og Davíð, eða hvað? Gömlu góðu menntaskólaklíkuna, ha?

En í öðru lagi skilur Geir ekki að hver dagur sem líður án þess að hann víki burt Seðlabankastjóranum burt sýnir ótrúlega pólitíska vanhæfni.

Og kveikir æ meiri efasemdir um að hann sé rétti maðurinn til að leiða Íslendinga eitt eða neitt. Því hann er augljóslega ekki mjög skynsamur, þegar öllu er á botninn hvolft.

Kannski fari að styttast mjög valdatíð Geirs.

Arftaki hans alla vega mjög tilbúin.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?