ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HINAR DIMMU MIÐALDIR SKOLLNAR Á?

14:11 › 3. nóvember 2008

Þessi dægrin er ég að rifja upp ýmislegt um Trójustríðið, út af grein fyrir tímaritið Söguna alla.

Hafi Trójustríðið átt sér einhverja sögulega rót, þá átti það sér stað kringum 1200 f.Kr.

Um þær mundir, eða skömmu síðar, hrundi menningin í Grikklandi.

Menning sem kennd var við Mýkenu.

Á skammri stundu hvarf fólk úr helstu borgum, hungursneyðir gengu yfir, lífshættir gerbreyttust.

Þetta tímabil er kallað "hinar dimmu grísku miðaldir".

Ástandið fór ekki að skána fyrr en 3-400 árum seinna.

Enginn veit almennilega af hverju hrunið varð.

Frekar en núna.

Það merkilega við söguna er að þegar maður skoðar hana úr fjarlægð virðist framvinda hennar nokkuð hæg og jöfn. Og stefna svona meira og minna "upp á við".

Fram, fram fylking!

Þegar maður skoðar betur úir og grúir af kreppum og "myrkum miðöldum".



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?