... er að þeir Valtýr Sigurðsson og Bogi Nilsson skuli hafa með höndum upphaf rannsóknar á bankahruninu, þótt synir beggja hafi verið koppar innarlega í búri tveggja banka.
Skil ekkert í jafn skynsömum manni og Valtýr er, að hann skuli reyna að bera í bætifláka fyrir þessa vitleysu í Kastljósi í kvöld.
Vissulega hef ég ekki ástæðu til að ætla annað en þeir Bogi muni gegna störfum sínum af trúmennsku.
En ef við eigum eitthvað að læra af atburðum síðustu vikna, þá er það ekki síst að svona vinnubrögð - þar sem minnsti vafi getur leikið á um hæfi eða vanhæfi - ganga alls ekki lengur.
Blogg
ALGJÖRLEGA, FULLKOMLEGA FRÁLEITT ...
20:10 › 3. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
