Hinar nýju gjaldeyrisreglur virðast rosalega strangar.
Vissulega skil ég sjaldnast hin fínni blæbrigði peningamála og því má vel selja mér þá hugmynd að þetta sé nauðsynlegt.
En að hinu leyti finnst mér líka að hörð andstaða Vilhjálms Egilssonar hjá Samtökum atvinnulífsins sé sannfærandi.
Og sjá t.d. einnig blogg Guðmundar Gunnarssonar um málið.
Það er í tilfellum eins og þessu sem bætt upplýsingagjöf og samráð við óbreyttan almúgann yrði til svo mikilla bóta.
Þegar verið að gera hluti sem augljóslega verða afar afdrifaríkir og geta brugðið til beggja vona, þá á að hjálpa fólki að skilja þá.
Ekki samþykkja þá að næturþeli í þinginu og láta svo ráðvilltan almenning lesa misvísandi skoðanir á netinu þangað til enginn veit sitt rjúkandi ráð.
Og fyrirgefið mér innilega þó ég minnist hér enn og aftur á þann mann Davíð - en nýtur hann virkilega trausts til þess að fara með þau gríðarlegu völd sem Seðlabankinn hefur nú fengið?
Blogg
VAR VIRKILEGA ÁSTÆÐA TIL AÐ AUKA VÖLD DAVÍÐS?!
11:48 › 28. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
