Bráðfyndin verður hún að kallast, sögusögnin um að Sigurður Einarsson sé að bauka við að kaupa Kaupþing í Lúxembúrg fyrir Gaddafí Líbýuforseta!
Auðvitað veit ég ekkert hvort eitthvað er hæft í þessu.
En þetta er svona sögusögn sem hefði fyrir ekki svo löngu síðan verið stimpluð sem varla tæk í farsa eða Spaugstofuna á vondum degi, en hljómar nú ekkert ósennilegri en margt annað sem við heyrum og fréttum þessa dagana.
Gaddafí Líbýuleiðtogi hefur hingað verið í hópi þeirra manna sem verst orð höfðu á sér á Vesturlöndum.
Nú er aftur á móti svo komið að ef hann er kominn í makk með íslenska útrásarvíkingnum má segja að skrattinn hitti ömmu sína.
Blogg
SKRATTINN HITTIR ÖMMU SÍNA: GADDAFÍ & ÚTRÁSARVÍKINGURINN
15:05 › 28. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
