ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 5m/s SSE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EIGUM VIÐ AÐ SLÁTRA HEILÖGU KÚNNI?

10:26 › 28. nóvember 2008


Undanfarið hefur æ meira borið á röddum sem spyrja: Af hverju má ekki afnema kvótakerfið?

Kvótakerfinu var komið á, að því er sagt var, til að vernda og byggja upp fiskistofna.

Það mistókst gersamlega, eins og við vitum.

Upp á síðkastið hefur kvótaféð verið matador-peningar fyrir bankana og útrásarvíkinga.

Nú eigum við rétt á því að fá að vita kostina og gallana við það einfaldlega að leysa upp kvótakerfið.

Margir munu náttúrlega sjá á því hina hroðalegustu meinbugi.

En það er algjört lágmark að fá að vita eitthvað konkret. Ekki láta umræðuna gerjast í skúmaskotum, án þess að okkar elskulegu ráðamenn taki nokkurn þátt í henni.

Kvótakerfið hefur verið heilög kýr í íslenskri umræðu undanfarin ár. Má fara sínu fram eins og henni sýndist.

Nú þarf að beisla kúna og gá hvort hún kemur ennþá að gagni.

Eða hvort rétt sé að slátra henni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?