Kannski ættum við bara öll að binda trúss okkar við Gaddafí Líbýuleiðtoga. Biðja hann ásjár, hvort hann vilji taka okkur að sér.
Gaddafí hefur sett fram miklar og merkar samfélagskenningar sem fylgt hefur verið í Líbýu síðan hann komst til valda fyrir margt löngu.
Miðað við að Gaddafí er jú einræðisherra kemur kannski einhverjum á óvart að kenningar hans ganga aðallega út á valddreifingu. Þar hefur sovét-hugsjónin verið hafin til vegs og virðingar.
Hvarvetna skipar fólk sér í ráð sem síðan kjósa fulltrúa í önnur stærri ráð sem svo aftur senda sína fulltrúa í enn stærri ráð.
Við hefðum nú ekki vont af slíkri valddreifingu þó ég viti ekki hversu þetta reynist í reynd.
Þetta er alla vega allt sett fram í "Græna kverinu" sem Gaddafí skrifaði og gaf út og samsvörun við Rauða kverið hans Maós er augljós.
Dóttir mín, sem nýlega var í Líbýu, er nú í óða önn að kynna sér hin fínni blæbrigði Græna kversins, svo hún geti upplýst okkur um hvernig okkur beri að hegða okkur ef Gaddafí verður leiðtogi lífs okkar.
Nú þegar getum við upplýst að eitt nokkuð óvænt atriði skipar víst furðu stóran sess í kenningakerfi Gaddafís og við munum því væntanlega verða að fylgja þegar þar að kemur:
Bílaleigur er af einhverjum ástæðum stranglega bannaðar.
Blogg
BÍLALEIGUR VERÐA STRANGLEGA BANNAÐAR!
20:16 › 28. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
